|
Hamingjudögum
2008 lokið
3.
júlí
Þá
er Hamingjudögum ársins 2008 lokið. Hátíðin
tókst í alla staði vel en
þetta var í fjórða skiptið sem
hátíðin fer fram. Talið er að gestir
hafi
verið á bilinu 700 - 1000 þegar mest var
á laugardeginum. Dagskrá
hátíðarinnar var með nokkuð hefðbundnum
hætti en óneitanlega setti veðrið
sitt mark á hátíðina þar sem
öll útidagskrá á sviði var flutt
inn í Félagsheimili Hólmavíkur.
Íbúar Strandabyggðar tóku mjög
virkan þátt og skreyttu hýbýli
sín og hverfi meira en nokkru sinni fyrr og voru í
fyrsta sinn veittar viðurkenningar fyrir skreytingar.
Mest skreytta húsið var valið Borgabraut 7,
Best skreytta húsið var að finna að Víkurtúni
2 og Hamingjusamasta gatan sem bjó yfir mesta heildarsvipnum
reyndist Vitabrautin. Best skreytta stofnunin/fyrirtækið
var Leikskólinn Lækjarbrekka og komu sæl
og glöð leikskólabörn upp á svið
til að taka við viðurkenningunni.
Dagskráin
var fjölbreytt og höfðaði til ungra sem
aldna. Þrátt fyrir að
dagskráin væri nú í fyrsta skipti
haldin innandyra heppnaðist sá hluti
ótrúlega vel. Gosi og Lóra heilluðu
börnin og tribaldansarar kenndu nýjan hamingjudans,
ásamt því að ungir söngfuglar
sungu sitt fegursta. Kökuhlaðborðið var hið
glæsilegasta á kvöldskemmtuninni og hnallþórurnar
flottar enda til mikils að vinna. Sérstök
dómnefnd sérfræðinga átti erfitt
með valið en að lokum voru það kökur
Ingibjargar Fossdal, Kristjönu Eysteinsdóttur
og Sigfríðar B. Thorlacius sem hrepptu verðlaunin.
Metnaður í skreytingum var ótrúlegur
og margar ótrúlega flottar kökur á
borðinu. Talið er að um tæplega 700 manns
hafi fengið sér af kökuhlaðborðinu
og notið veiganna undir Hólmvískum Hamingjutónum
heimamanna. Verðlaunin voru flott og eiga Katla, Ísrós
og Kornax þakkir skildar fyrir framlag sitt.
Veðrið á Hamingjudögum lék þó
ekki alveg við gesti og heimamenn þar sem gekk á
með hálfgerðum haustskúrum og nokkuð
var vindasamt, ásamt því að frekar
svalt var í veðri. Á föstudagskvöldinu
bar á ölvun og látum á tjaldsvæðinu
en ekki er hægt að tala um slík ólæti
það sem eftir lifði helgar. Dansleikur með
Veðurguðunum fór fram í Félagsheimilinu
á laugardagskvöldinu og skemmtu ballgestir sér
þar konunglega. Við flytjum ekki til Bahama úr
þessu.
Þrátt
fyrir veðrið og lætin í því
hafa íbúar Strandabyggðar sýnt það
og
sannað að hamingjuna er hægt að finna í
hvaða veðri sem er. Við getum verið stolt
af því hvernig tókst til í heildina
og sönnuðum að við erum góð heim
að sækja og höfum upp á margt að
bjóða í bland við hamingjuna. Fjölmargir
hafa lagt sitt á plóginn til að gera Hamingjudaga
að veruleika og eiga þeir hrós skilið
og þakklæti.
Á næstunni verður farið í að
meta Hamingjudaga og eru allir sem áhuga hafa á
að leggja orð í belg um það sem var
gott eða annað sem má bæta hvattir til
að senda línu á póstfangið hamingjudagar@holmavik.is.
Nýr hamingjudagavefur verður væntanlega opnaður
á haustmánuðum þar sem nýr
vefur fyrir sveitarfélagið í heild sinni
er í smíðum en þangað til fær
þessi að lifa eitthvað lengur, þó
án þess að vera uppfærður.
Sjáumst að ári og TIL HAMINGJU VIÐ ÖLL
Brynja Bjarnfjörð Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri
Forsýning
á þjóðsagnadagskrá
27.
júní
Eftir
hádegi í dag héldu félagar í
leikfélagi Hólmavíkur forsýningu
á þjóðsagnadagskrá sem einnig
verður hluti af útidagskránni á Klifstúni
á morgun. Forsýningin fór fram á
sjúkradeild Heilbrigðistofnunarinnar þar
sem þakklátir vistmenn og starfsmenn nutu dagskrár
með leik, söng, flautuleik og látbragði.
Dagskráin var sett saman í tilefni Hamingjudaga,
af Hrafnhildi Guðbjörnsdóttur, sem jafnframt
leikstýrir þjóðsagnaverkefninu.
Hamingjudagar
hefjast í dag
27.
júní
Í
dag hefjast formlega Hamingjudagar á Hólmavík.
Dagskrá hátíðarinnar er stórglæsileg
að vanda og búist er við talsverðu fjölmenni
til Hólmavíkur um helgina. Dagskrána
er að finna hér á vefnum, en einnig verður
dagskrárbæklingi dreift til gesta og gangandi
á hátíðinni. Í dag verður
m.a. haldinn ratleikur kl. 17:00, ljósmyndasýning
verður opnuð í gamla kaupfélagshúsinu,
kartbraut opnuð á hafnarsvæðinu og veglegt
diskótek haldið fyrir 11-16 ára í
Félagsheimilinu. Spurningakeppnin Drekktu betur hefst
svo í Bragganum kl. 21:00 og göngugarpar geta
rölt um bæinn undir leiðsögn Jóns
Alfreðssonar. Lokahnykkurinn er svo lifandi tónlist
á Café Riis fram á rauða nótt.
Kvennakórinn
hitar upp fyrir hamingjudaga
26.
júní
Kvennakórinn
Norðurljós heldur tónleika á Café
Riis Hólmavík fimmtudagskvöldið 26.
júní og hefjast þeir kl. 21:00. Blandað
efni er á söngskránni og er næsta
víst að á meðal efnis verður söngvar
sem finna má á diski sem Kvennakórinn
hyggst gefa út í haust og tekinn var upp nú
í vor. Strandamenn eru hvattir til að skella sér
á tónleikana, enda ágætt tækifæri
til að hita upp fyrir Hamingjudagana sem haldnir verða
um helgina.
Kaupfélag
Steingrímsfjarðar Hólmavík býður
upp á kassabílasmiðju
25.
júní
Kaupfélag
Steingrímsfjarðar Hólmavík býður
börnum upp á kassabílasmiðju sem verður
starfrækt fram á föstudag. Á laugardag
munum við svo sjá afrakstur smiðjunnar en þá
fer fram hið æsispennandi og skemmtilega kassabílarallý.
Hafþór hefur veg og vanda af þessari smiðju
eins og undanfarin ár. Hann hefur safnað timbri
og hjólum undir bílana í vetur og ætti
að eiga ágætis lagar en annars er nú
ekki langt að fara í Pakkhús KSH sem hefur
ákveðið að styrkja Hamingjudaga með
þessum hætti. Við hvetjum alla krakka á
svæðinu til að koma í Kassabílasmiðju
Hafþórs
sem verður starfrækt í Handverkshúsi
Hafþórs.
Sölubásar
og Café Riis
24. júní
 |
Sölubásar verða starfræktir á Hamingjudögum líkt og fyrri hátíðir. Mun Lionsklúbburinn vera með sínar ómissandi djúpsteiktu rækjur, Kvennakórinn Norðurljós mun selja bakkelsi og jafnvel vöfflur og kakó, Geislinn verður með hefðbundna sjoppu, Sauðfjársetrið verður með varning sinn til sölu, ásamt einkaaðila sem sér um samlokur ofan í liðið. Einnig verður hægt að fjárfesta í heitri súpu og fræðandi kiljum. Það ættu allir að geta fundið eitthvað snarl sér við hæfi.
Rauði krossinn mun vera með flóamarkað sinn í sérstöku tjaldi sem Strandakúnst hefur lánað þeim. Tjaldið verður á Galdrasýningatúninu og eru gestir hvattir til að fjölmenna þangað og leggja góðu málefni lið. Hægt verður að gera góð kaup á fatnaði og fleiru.
Geislinn mun einnig vera með sjoppu á föstudagskvöldinu á diskóteki ungmenna 11-16 ára uppí félagsheimili. Á laugardagskvöldi mun einkaaðili sjá um veitingar á ballinu en hægt verður að kaupa sælgæti, samlokur, gos og sitthvað fleira nærandi. Ballgestir ættu því allir að fara saddir og sáttir heim að sofa.
Café Riis verður með opið alla helgina og bjóða upp á Hamingjumatseðil. Sérstakur matseðill verður gefinn út fyrir helgina en á laugardeginum er hægt að skella sér í grillveislu a la Bragginn og þeir sem vilja velja sér af matseðli skella sér inn á Riis.
Raddþjálfun fyrir söngkeppni
24. júní
Líkt og undanfarna Hamingjudaga verður söngkeppni barna 9 - 12 ára. Heiða Ólafsdóttir, hin hólmvíska söngmær og dagskrárgerðakona mun sjá um sviðsframkomu og raddþjálfun þeirra sem hafa áhuga að taka þátt. Hún mun vera með raddþjálfun á föstudeginum og laugardeginum. Þeir sem hafa áhuga að taka þátt eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við Brynju Bjarnfjörð.
Athugið að hér með hefst þá skráning í söngkeppnina og henni lýkur á laugardegi kl. 11.00 en vegna framkvæmdar keppninnar er ekki hægt að taka við skráningum eftir það.
Einnig má minna á að kassabílasmiðja Hafþórs hefst núna á morgun og verður fram á föstudag. Kassabílarallýið fer svo fram á laugardeginum.
Diskótek í boði Kaupþings banka
23. júní
Kaupþing banki á Hólmavík hefur ákveðið að styrkja Hamingjudaga og leggur til heilt diskótek. Diskótekið er á föstudaginn 27.júní og er fyrir unglinga á aldrinum 11- 16 ára. Frítt verður inn enda er partýið í boði Kaupþings banka. Við hvetjum alla unglinga á svæðinu til að fjölmenna enda er ekki um neitt slordiskótek að ræða, heldur mætir DJ Óli Geir á svæðið ásamt DJ Andra. Þeir félagarnir hafa farið vítt og breitt um Ísland og meðal annars spilað á hinum feykivinsælu Splash kvöldum. Nú er kominn tími til að dansa og hver veit nema að hinn glænýji hólmvíski slagari "Ég vil dansa" muni heyrast á milli heitra sumarsmella í danstónlistinni.
Hægt er að fræðast meira um plötusnúðanna á heimasíðunni www.agent.is
Hamingjan lætur gott af sér leiða
23. júní
Rauði krossinn verður með fata- og flóamarkað á hamingjudögum til styrktar Guðmundi Þorsteinssyni á Finnbogastöðum. Nú nýverið missti Guðmundur allt sitt í bruna en hann gefst ekki upp og stefnir að því að byggja nýtt hús að Finnbogastöðum fyrir veturinn.
Þess má einnig geta að Félag Árneshrepssbúa hefur hrundið af stað söfnun Guðmundi til stuðnings og jafnframt opnað bloggsíðu um átakið.
Reikningsnúmer söfnunarinnar er 1161-26-001050 og kennitala reikningsins er 4510892509.
Slóðin inn á síðuna til stuðnings uppbyggingarinnar á Finnbogastöðum er www.trekyllisvik.blog.is.
Endilega komið við í sölubás Rauða krossins og leggið góðu málefni lið.
Áhugasamir sjálfboðaliðar sem vilja aðstoða geta haft samband við Gunnar Melsted í 451-3389 eða 690-3904
Hnallþórukeppni
20. júní
"Mörgum þykir kaka góð" eins og einhver sagði og margar þeirra líta einstaklega vel út. Við ætlum að vera einstaklega yfirborðskennd með hnallþórurnar okkar í ár og veita verðlaun fyrir best skreyttu kökuna, fallegustu hnallþóruna og hamingjusömustu hnallþóruna. Líkt og í fyrra verður hnallþóruborð í Hvamminum/Klifstúni og ætlunin er að velja úr hinu glæsilega hlaðborði þrjár kökur sem þykja verðskulda að bera þessa titla. Ísrós, Katla og Kornax munu gefa glæsilegar gjafakörfur og því til mikils að vinna. Við hvetjum alla Hólmvíkinga til að "missa" sig í skreytingum á hnallþórunum í ár og reyna að vinna einn af þessum eftirsóttu titlum.
Körtur á hafnarsvæðinu
20. júní
Körtuleiga (go-kart) á Ísafirði hefur ákveðið að sækja okkur heim um Hamingjudagana og bjóða upp á leigu á kartbílum. Brautin verður lögð á hafnarsvæðinu og geta áhugasamir kíkt þangað frá og með á föstudeginum 27. júní og leigt sér körtu. Aldurstakmark er 10 ára í bílana og verða forráðamenn að fylla út sérstakt eyðublað sem verður afhent á staðnum. Fjölbreytnin í afþreyingu er því orðin aldeilis mikið á Hamingjudögum og ættu allir að finna sér einhverja skemmtun við hæfi.
Tómas Ponzi teiknari mætir á svæði
19. júní
Teiknarinn og listamaðurinn Tómas Ponzi hefur áður sótt Hólmvíkinga heim, en hann var á Galdrasýningunni um síðustu verslunarmannahelgi að teikna andlitsmyndir af gestum og gangandi. Í ár ætlar hann að koma til okkar um Hamingjudaga og bjóða upp á þjónustu sína. Hann verður í Gamla kaupfélagshúsinu eða heldur sig utandyra í góða veðrinu að teikna. Gestir og gangandi eru hvattir til þess að kíkja á hann og sjá hæfileikamann að verki og jafnvel láta teikna mynd af sér. Aldrei of seint að huga að jólakortunum eða jólagjöfinni til mömmu/ömmu/Siggu frænku eða Halla frænda!!! Þeir sem vilja kynna sér verk hans er bent á heimasíðu hans: http://tap.blogspot.com/
Bolir, blöðrur og sundpokar
18. júní
Hinir heitu e ðalflottu hamingjubolir eru komnir til Hólmavíkur og fást í Upplýsingamiðstöðinni. Að þessu sinni er um að ræða svarta boli með silfraðri áletrun og hvíta boli með gylltri áletrun. Einnig fást fallega grænir sundpokar með bleiku eða bláu hamingjudagamerki. Blöðrurnar eru komnar í þúsundavís en athugið að þær fara hratt og því um að gera að tryggja sér búnt til að geta skreytt hús og híbýli sín. Fyrsti viðskiptavinurinn í ár var Kristný Maren Þorvaldsdóttir, 8 ára og fjárfesti hún í fallegum bol og glæsilegum sundpoka.
- Höndlaðu hamingjuna og hamingjubolina í Upplýsingamiðstöðinni -
Sundhani verður með siglingar og sjóstöng
18. júní
Eins og undanfarna Hamingjudaga mun Sundhani ST 3 vera me ð eyjasiglingar. Siglt verður á laugardegi frá kl. 10 til 14 en gæti framlengst verði ásókn mikil. Ásbjörn skipstjóri býður upp á siglingu til Grímseyjar með möguleika á sjóstangaveiði á leiðinni. Ásbjörn gjörþekkir svæðið og veit hvar fiskarnir halda sig, eru því möguleikarnir að næla sér í soðið heilmiklir. Tekið er við pöntunum við Hólmavíkurbryggju á laugardagsmorgninum eða í síma 899-4238 (Ásbjörn). Ferðin kostar einungis 1500 krónur og má segja að ekki sé að finna verðbólguna hjá Ásbirni og Sundhana ST 3. Viljirðu jafnvægi, þá velurðu Sundhana ST 3.
Litboltagleði á Hamingjudögum
18. júní
Hægt verður að spila litbolta (paintball) á sjálfri Hamingjuhelginni en fyrirtæki frá Selfossi mun koma og setja upplitboltavöll í Brandsskjólum. Litbolti sameinar áhugamál margra en þeir sem hafa ánægju af málningu, málverkum, íþróttum, skotveiði, hrekkjum og eltingarleik ættu að finna sig í þessu sporti. Ákveðið hefur verið í tilefni af komu litboltavallar til Hólmavíkur í fyrsta skipti, að hafa firmakeppni og eru fyrirtæki beðin um að hafa samband við Sigga Þór (867-4246) eða Örvar 843-6815) en þeir sjá um skipulagningu mótsins. Gestir og gangandi eru velkomnir að taka þátt í litboltanum en hann verður væntanlega frá morgni til kvölds. Verðskrá Litboltavallar er:
Vallargjald: 3.300 kr.
100 auka skot: 1.200 kr.
Innifalið í vallargjaldi er galli, gríma, byssa og 100 skot.
Sjá heimasíðu fyrirtækisins hér: http://litboltavollur.is/
Skreytum hverfi með marglitum greinum
18. júní
Þar sem hamingjuna er að finna á næsta leiti er tímabært að fara að huga að umhverfi hennar. Komið hefur verið á fót sérstakri skreytinganefnd sem mun vera vítamínsprauta samfélagsins í skreytingum. Þessi nefnd mun einnig velja á Hamingjudögum hús eða hverfi sem þeim þykir skara framúr í skreytingum. Hver veit nema að þú gætir búið í "best skreytta húsinu" og ekki er kannski verra að búa í "mest skreytta húsinu."??!?!
Hverfalitirnir eru þeir sömu og undanfarin ár og af gefnu tilefni þá fara blöðrurnar að koma í hverfalitum upp í Upplýsingamiðstöð, sem og bolir og sundpokar merktir Hamingjudögum. Í skreytingarnefnd 2008 sitja: Berglind Maríusdóttir, Brynja Rós Guðlaugsdóttir, Júlíus F. Jónsson, Lýður Jónsson og Steinunn Þorsteinsdóttir
Dagskráin
17. júní
Dagskrá hamingjudaganna er komin inn á vefinn.
Gosi og Lóra kæta börnin
17. júní
Þau eru lögð af stað fótgangandi frá Reykjavík þar sem þau hafa verið að leika í Borgarleikhúsinu. Þau eiga langa ferð fyrir höndum enda er ekki auðvelt fyrir spýtustrák og kisu að ganga alla leið til Hólmavíkur. En þau hafa lofað að vera komin hingað á Hamingjudaga og gleðja börnin. "Ég er engin stjarna, bara spýtustrákur" sagði Gosi en við vitum að Gosi er svo miklu miklu meira og bjóðum við þau hjartanlega velkomin. Þeir sem sjá þau á leiðinni eru vinsamlegast beðin um að taka þau með eða í það minnsta lauma að þeim brauði og mjólk. Gosa leikur Víðir Guðmundsson en Lóru leikur Aðalbjörg Árnadóttir.
Hamingjulagið í upptökuver
13. júní
Í gær var brugðið undir sig betri fætinum og haldið á vit tónævintýra. Ferðinni var heitið til Flateyrar í Tankinn til að taka upp sigurlag Ásdísar Jónsdóttur “Ég vil dansa.” Upptökum stjórnaði Önundur Pálsson. Stefán Jónsson spilaði listavel undir og söng bakraddir en aðalröddin á sem áður, Salbjörg Engilbertsdóttir. Einungis tók um 7 tökur til að ná þessu kraftaverki og þá var hafist við að vinna verkið í tölvu. Tæknin, tíminn og vinnan á bakvið eitt lag er alveg gífurlega mikil. Nú er það næsta verk að fá lokaútgáfuna frá Tankinum og senda til fjölföldunar en hönnun á hulstri er lokið. Þeir sem hafa áhuga á að tryggja sér eintak beint úr vélinni er bent á að setja sig í samband við Snúllu/Ásdísi Jónsdóttur í síma: 694-3306, eða með tölvupósti asdisj@snerpa.is.
|
Salbjörg í "sönglauginni"
|
|
Ánægður hópur að afloknum tökum og æðislegt veður sem fylgdi gleðinni
|
|
Mikið verið að skoða skjáinn sem sagði allt sem segja þurfti að tökum loknum |
Tribaldansarar og hamingjudansinn
13. júní
Hinar þaulreyndu og vel æfðu stöllur, Bryndís Steinunn og Guðný Waage, munu koma fram á Hamingjudögum á Hólmavík. Þær eru með dansatriði þar sem þær dansa tribaldansa. Þær hafa einnig tekið sigurlagið í ár í fóstur og hafa ákveðið að deila nokkrum danssporum sem þeim datt í hug við að hlusta á það. Nýr hamingjudans gæti því verið að fæðast við hið nýja hamingjulag "Ég vil dansa." Hólmvíkingar og gestir þeirra eru því beðnir um að mæta í dansgírnum í Hvamminn 28.júní.
Paintball og Veðurguðir á Hamingjudögum
10. júní
Bæjarhátíðin Hamingjudagar á Hólmavík verður haldin helgina 27.-29. júní og er dagskráin í mótun þessa dagana. Margir kunnuglegir viðburðir eru á dagskrá eins og kökuhlaðborð í Hvamminum, Hólmvískir hamingjutónar, kassabílarallý og Furðuleikarnir í Sævangi. Hljómsveitin Veðurguðirnir mun leika fyrir dansi á laugardagskvöldi í félagsheimilinu og fjölmargir aðrir listamenn koma fram þessa Hamingjuhelgi. Áhugasamir um íþróttir og keppnisanda ættu ekki að vera sviknir þar sem m.a. verður keppt í mótorkrossi, golfi og litbolta (paintball).
Mynd: strandir.is
Styttist í hátíð
9. júní 2008
Nú styttist í Hamingjudaga og ákveðið hefur verið að fegra bæinn fyrir 17.júní. Frágangur við blómakörfur mun því eiga sér stað mun fyrr en áður.
Þeir sem eiga körfur heima eru vinsamlegast beðnir um að afhenda þær Siggu Drífu til áfyllingar, við áhaldahúsið á fimmtudeginum 12. júní eða föstudeginum 13.júní. Hægt er að ná í hana í síma 8953317 ef eitthvað er óljóst. Starfsmenn Áhaldahúss hafa unnið upp á síðkastið við að setja upp festingar fyrir körfurnar en Vinnuskólinn mun sjá um gróðursetningu í þær. Í samstarfi við Áhaldahúsið mun Vinnuskólinn sjá um að setja körfurnar upp. Sigríður Drífa Þórólfsdóttir sér um að panta blómin og leiðbeina vinnuskólanum við að setja blómin niður. Það er von um að þetta fyrirkomulag feli í sér bestu og þægilegastu lausnina fyrir alla íbúa og körfurnar komist upp á svipuðum tíma um allan bæ. Við stefnum að fallegum bæ fyrir 17. júní og svo vel skreyttum fyrir Hamingjudagahátíðina sem verður 27. júní til 29. júní.
Hamingjudagar 2008
5. júní 2008
 |
Bæjarhátíðin Hamingjudagar á Hólmavík verður haldin dagana 27.júní til 29.júní. Margir viðburðir hafa fest sig í sessi eins og t.d. kökuhlaðborðið í Hvamminum, Hólmvískir hamingjutónar, kassabílarallýið og að lokum Furðuleikarnir á Sauðfjársetrinu. Í ár ætti enginn að vera svikinn um gleði, skemmtun og hamingju þar sem þessir atburðir og margir aðrir verða til staðar.
Hinir stórgóðu Veðurguðir munu leika fyrir dansi á laugardagskvöldi í félagsheimilinu og einnig munu aðrir listamenn koma fram þessa hamingjusömu helgi. Dagskrá er ekki orðin fullmótuð en hún verður lögð fram er nær dregur. Áhugasamir um íþróttir og keppnisanda ættu ekki að vera sviknir þar sem m.a. verður keppt í mótorkrossi, golfi og
litbolta (paintball).
Þeir sem hafa í hyggju að vera með sölutjöld eða annað slíkt eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband (hamingjudagar@holmavik.is / gsm: 869-9200). Einnig láta vita af
atburðum/viðburðum sem eru skipulagðir eða áætlaðir að eigi sér stað á sama tíma og Hamingjudagar.
Ásdís Jónsdóttir samdi Hamingjulagið í ár
2. júní 2008
Hamingjulagið 2008 var valið í skemmtilegri undankeppni í kvöld í Félagsheimilinu á Hólmavík. Fjögur lög kepptu þar um hvaða lag verður einkennissöngur bæjarhátíðarinnar Hamingjudaga á Hólmavík sem haldnir verða í sumar. Það var lag og texti eftir Ásdísi Jónsdóttur sem varð fyrir valinu að þessu sinni og bar það nafnið Ég vil dansa. Það var Salbjörg Engilbertsdóttir sem flutti lagið. Fjölmenni var á samkomunni, en það voru áhorfendur sem völdu sigurlagið. -
Hamingjudagar afstaðnir
4. júlí 2007
Þá er Hamingjudögum ársins 2007 lokið. Hátíðin tókst í alla staði vel en þetta var í þriðja skiptið sem hátíðin fer fram. Talið er að gestir hafi verið á bilinu 1200-1500 þegar mest var á laugardeginum. Dagskrá hátíðarinnar var með nokkuð hefðbundnum hætti, en þó var lögð meiri áhersla á fjölskylduna en hin árin tvö og nokkrir nýir þættir litu dagsins ljós í dagskránni. Íbúar Strandabyggðar tóku mjög virkan þátt og skreyttu hýbýli sín og hverfi meira en nokkru sinni fyrr. Margar þessara skreytinga vöktu gríðarlega athygli og þótti bærinn skarta sínu fegursta í bland við stórkostlega náttúru. Þá var einnig skemmtilegt að heimilin í dreifbýlinu gáfu nú tóninn með markvissari hætti með skemmtilegu skrauti og fígúrum.
Að margra mati var hápunktur hátíðarinnar kökuhlaðborðið í Hvamminum sem þótti einkar glæsilegt og eins og einhver sagði var það bara “tær snilld”. Talið er að u.þ.b. 1000 manns hafi notið veitinganna þá um kvöldið þrátt fyrir örlítla ískalda innlögn úr Steingrímsfirðinum. Víða heyrðist að vonandi væri þessi þáttur hátíðarinnar kominn til að vera enda sýndi þetta samstöðu heimamanna betur en nokkuð annað á hátíðinni þar sem tertur bárust frá nánast öllum heimilum í sveitarfélaginu.
Veðrið á Hamingjudögum var einkar gott í heildina, sól, hiti og örlítil gola enda var þetta í fyrsta sinn sem ekki ringdi í bland við sólina. Mikið fjör var á tjaldstæðinu enda stór hópur ungmenna á tvítugsaldri sem kom sér þar fyrir. Þrátt fyrir mikið fjör og nokkra ölvun fór allt vel fram og ekki komu upp nein alvarleg mál enda voru ungmenninn komin til að njóta Hamingjudaga með okkur hinum. Dansleikurinn í félagsheimilinu var alveg frábær og skemmtu gestir sér konunglega.
Margir hafa lagt hönd á plóginn til að gera Hamingjudaga ársins 2007 að veruleika. Íbúar Strandabyggðar eiga innilegar þakkir skyldar fyrir þá virkni og stemmingu sem þeir bjuggu til fyrir og á hátíðinni. Við getum verið stolt af því hvernig til tókst í heildina og sýndum og sönnuðum að við erum góð heim að sækja og höfum upp á margt að bjóða í bland við hamingjuna.
Á næstunni verður farið í að meta Hamingjudaga og eru allir sem áhuga hafa á að leggja orð í belg um það sem var gott eða annað sem má bæta hvattir til að senda línu á póstfangið hamingjudagar@holmavik.is. Þá verður hafist handa við að endurbæta vefinn með haustinu en því miður verður honum lítið haldið við fram að þeim tíma. Þegar þessum endurbótum verður lokið ætti að vera hægt að nálgast nýjar myndir og fleira skemmtilegt af Hamingjudögum 2007.
Sjáumst að ári og TIL HAMINGJU VIÐ ÖLL
Bjarni Ómar Haraldsson, framkvæmdastjóri
|